LignoLoc viðarnaglar
LignoLoc viðarnaglar eru úr beyki. Togstyrkur LignoLoc viðarnagla er sambærilegur togstyrk álnagla. Hægt er að skjóta nöglunum með þar til gerðri naglabyssu í timbur án þess að bora fyrir þeim.
Þegar unnið er með fallegan við er tilvalið að nota viðarnagla til festingar. LignoLoc viðarnaglar skilja hvorki eftir sig mar né sár í timbri líkt og gerist þegar stálnöglum er skotið í timbur.
LignoLoc viðarnaglar hafa sama einangrunargildi og annað timbur. Þess vegna leiða þeir ekki kulda líkt og hefðbundnir stálnaglar.
Helstu kostir viðarnagla:
- LignoLoc viðarnaglar draga ekki í sig vatn og þar af leiðandi verður engin útþensla
- LignoLoc viðarnaglar haldast vel í viðnum vegna þess að þeir laga sig að viðnum
- LignoLoc viðarnaglar eru varðir gegn sveppamyndun
- LignoLoc viðarnaglar fara vel með viðinn, hann merst hvorki né særist
- LignoLoc viðarnaglar eru umhverfisvænni en stálnaglar
- Engin þörf er á að bora fyrir LignoLoc viðarnöglum
- Engin þörf að nota trélím með LignoLoc viðarnöglum
- LignoLoc viðarnaglar veita betri eldvörn heldur en venjulegir naglar
- LignoLoc viðarnaglar hafa sama einangrunargildi og annað timbur og leiða því ekki kulda líkt og venjulegir stálnaglar.
- LignoLoc viðarnaglar hafa togstyrk sambærilegan álnöglum (~ 250 N/mm²)
- LignoLoc viðarnaglar fara betur með verkfær þegar sagað eða pússað er yfir naglana
Viðarnaglarnir henta vel í:
- viðarklæðningu innanhúss
- grindverk og skjólgirðingar
- viðarhúsgögn
- sauna og gufubað
- ýmis gólfefni, t.d. OSB plötur og annað viðargólf
- bátasmíði
- og margt fleira
Hér að neðan má sjá þegar framleiðandinn prófar styrk naglanna: